Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 13. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.Á efnisskrá eru verk fyrir fiðlu eftir Johann Sebastian Bach, Georg Philipp Telemann og Eugène Ysaÿe.
Tónleikarnir fara framí Hörpuhorni, á annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
---
Sólveig Steinþórsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1995 og hóf fiðlunám þriggja ára gömul við Allegro Suzukitónlistarskólann undir handleiðslu Lilju Hjaltadóttur og lærði síðar hjá Guðnýju Guðmundsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk bakkalárprófi frá Listaháskólanum í Berlín árið 2019 og meistaragráðu frá Listaháskólanum í Zürich árið 2021.
Hún hefur leikið einleiks- og kammertónlist á Íslandi, Þýskalandi, Sviss og Ítalíu og komið fram á ýmsum hátíðum, þar á meðal Bodensee Festival, Festival alte Musik Zürich og Tónlistarhátíð unga fólksins, og á tónleikaröðum svo sem í Kammermúsíkklúbbnum í Hörpu, Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni og Tíbrá í Salnum í Kópavogi. Hún hefur einnig spilað sem barokkfiðluleikari með ýmsum hópum, t.d. Barokkbandinu Brák, Zürcher Barockorchester, Akademie für alte Musik Berlin og J. S. Bach Stiftung St. Gallen.
Í júní 2023 gaf hollenska útgáfufyrirtækið Challenge Classics út upptöku á flutningi Sólveigar á fiðlusónötum Ysaÿe.
---
Sólveig Steinþórsdóttir, violinist, gives a concert in Hörpuhorn, an open space located on the first floor of Harpa, right in front of Eldborg. Admission is free and everybody welcome.
The concert is part of the "Harpa Welcome Home Series", an annual concert series, featuring young Icelandic soloists that have finished their studies abroad. This concert series is a collaborative project between Harpa and the FÍT classical department of FÍH.
---
Sólveig Steinþórsdóttir was born in Reykjavík in 1995 and began studying violin at the age of three at the Allegro Suzuki Music School under the guidance of Lilja Hjaltadóttir and later studied with Guðný Guðmundsdóttir at the Reykjavík School of Music. She completed her bachelor's degree from the Berlin Academy of the Arts in 2019 and her master's degree from the Zurich Academy of the Arts in 2021.
She has performed solo and chamber music in Iceland, Germany, Switzerland and Italy and has performed at various festivals, including the Bodensee Festival, the Festival alte Musik Zürich and the Music Festival of the Young, and in concert series in Iceland. She has also played as a baroque violinist with various groups, e.g. the Baroque Band Brák, the Zürcher Barockorchester, the Akademie für alte Musik Berlin and the J. S. Bach Stiftung St. Gallen.
In June 2023, the Dutch label Challenge Classics released a recording of her performance of Ysaÿe's violin sonatas.
You may also like the following events from Harpa Reykjavik Concert and Conference Centre:
- Next Sunday, 6th July, 04:00 pm, Velkomin heim | Sigríður Hjördís Önnudóttir, flautuleikari in Reykjavík
- Next month, 20th July, 04:00 pm, Velkomin heim | Sandra Lind Þorsteinsdóttir, sópransöngkona in Reykjavík
- Next month, 27th July, 04:00 pm, Velkomin heim | Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, sópransöngkona in Reykjavík
Also check out other
Music events in Reykjavík,
Entertainment events in Reykjavík,
Festivals in Reykjavík.